Isaiah 32

1Þegar konungurinn ríkir með réttlæti og höfðingjarnir stjórna með réttvísi, 2þá verður hver þeirra sem hlé fyrir vindi og skjól fyrir skúrum, sem vatnslækir í öræfum, sem skuggi af stórum hamri í vatnslausu landi. 3Þá eru augu hinna sjáandi eigi afturlukt, og þá hlusta eyru þeirra, sem heyrandi eru. 4Hjörtu hinna gálausu munu læra hyggindi og tunga hinna mállausu tala liðugt og skýrt. 5Þá verður heimskinginn eigi framar kallaður göfugmenni og hinn undirföruli eigi sagður veglyndur. 6Heimskinginn talar heimsku og hjarta hans býr mönnum ógæfu, með því að hann breytir óguðlega og talar villu gegn Drottni, lætur hinn hungraða vera svangan og gefur eigi þyrstum manni vatnsdrykk. 7Vopn hins undirförula eru skaðvænleg. Hann hugsar upp pretti til þess að koma hinum umkomulausa á kné með lygaræðum, og það jafnvel þótt hinn fátæki sanni rétt sinn. 8En göfugmennið hefir göfugleg áform og stendur stöðugur í því, sem göfuglegt er. 9Þér áhyggjulausu konur, standið upp og heyrið raust mína! Þér ugglausu dætur, gefið gaum að ræðu minni: 10Eftir ár og daga skuluð þér hinar ugglausu skelfast, því að vínberjatekjan bregst og aldintekja verður engin. 11Hræðist, þér hinar áhyggjulausu! Skelfist, þér hinar ugglausu! Farið af klæðum og verið naktar, gyrðið hærusekk um lendar yðar, 12berið yður hörmulega vegna akranna, vegna hinna yndislegu akra, vegna hins frjósama vínviðar, 13vegna akurlendis þjóðar minnar þar sem vaxa munu þyrnar og þistlar, já vegna allra glaðværðarhúsanna í hinni glaummiklu borg! 14Því að hallirnar munu verða mannauðar og hávaði borgarinnar hverfa. Borgarhæðin og varðturninn verða hellar um aldur og ævi, skógarösnum til skemmtunar og hjörðum til hagbeitar _ 15uns úthellt verður yfir oss anda af hæðum. Þá skal eyðimörkin verða að aldingarði og aldingarður talinn verða kjarrskógur, 16réttvísin festa byggð í eyðimörkinni og réttlætið taka sér bólfestu í aldingarðinum. 17Og ávöxtur réttlætisins skal vera friður, og árangur réttlætisins rósemi og öruggleiki að eilífu. 18Þá skal þjóð mín búa í heimkynni friðarins, í híbýlum öruggleikans og í rósömum bústöðum. 19En hegla mun þegar skógurinn hrynur og borgin steypist. 20Sælir eruð þér, sem alls staðar sáið við vötn og látið uxa og asna ganga sjálfala.
Copyright information for Icelandic